Smá byrjunarhiksti í upphafi leiks!

Fröken Fabjúlöss vaknaði upp við þann vonda draum í gærkvöldi að leikurinn fíni sem fór af stað í gær var ekki að virka sem skildi. Smá byrjunarörðuleikar urðu til þess að emailið góða frokenfab@feykir.is var ekki að virka og voru góð ráð dýr. En með hjálp snillinga og fagmanna hefur emailið fengið sáluhjálp og allskostar lækningu, og er leikurinn því orðinn fullvirkur!

En fyrir ykkur sem eruð að heyra um téðann leik í fyrsta skipti, þá tókum við okkur til hérna í tískuhorni Fabjúlössmans og smelltum af stað naglalakkleik! Nú er semsagt um að gera að grípa í naglalakkið og láta innblásturinn og sköpunargáfuna eða skort á slíku ráða ferðinni. Taka svo mynd af nöglunum, senda inn á frokenfab@feykir.is og þið gætuð átt von á vinningi! Það sem Fröken Fabjúlöss vill sjá eru glamúrgengið sitt fallega naglalakkað!

Í vinning eru 3 fallegir litir úr Germany línunni frá OPI í boði Artica Heildverslun. Frk Fab er búin að prufa tvo liti úr þeirri línu og féll gjörsamlega fyrir þeim og dauðöfundar tilvonandi vinningshafa!

Leikurinn átti að vera í gangi til hádegis 11. Október, en vegna þess að upp kom byrjunarhiksti hefur stjórnarráð Fabjúlössmans ákveðið að færa lokadaginn aftur um einn dag. Leiknum lýkur því á hádegi 12. Október!

Við í glamúrhorni veraldarinnar bíðum spenntar eftir myndum frá ykkur!

Fleiri fréttir