Smábátahöfnin tekin í notkun
Í gær var lokið uppsetningu á nýjum flotbryggjum fyrir minni báta. Eru þetta tvær bryggjur, önnur 80 metra löng með sjö fingrum fyrir fjórtán báta og hinsvegar 60 metra löng bryggja með fingrum fyrir 34 báta. Gunnar Steingrímsson hafnarvörður segir að smá frágangur sé enn eftir, svo sem læst gönguhlið, eftirlitsmyndavélar og fleira smálegt.
Um uppsetningu flotbryggjunnar sáu þeir Kristján Óli Hjaltason eigandi Króla ehf., ásamt Björgvini Hreinssyni, Árna Sigurpálssyni og Gunnari Jóhannssyni. Mynd: Gunnar Steingrímsson
Gunnar segir að bryggjueiningarnar sem keyptar eru af Króla ehf. í Garðabæ hafi verið framleiddar hjá Loftorku í Borgarnesi, ásamt 12 metra steinsteyptum fingrum en 6 og 8 metra fingur sem eru úr járni með flotholtum undir eru innfluttir.
Kristján Óli Hjaltason eigandi Króla ehf. kampakátur með gott verk. Mynd: Gunnar Steingrímsson.
Um uppsetningu sáu Kristján Óli Hjaltason eigandi Króla ehf., ásamt Björgvini Hreinssyni, Árna Sigurpálssyni og Gunnari Jóhannssyni. Notkun er hafin á bryggjunum en formlega verða þær teknar í gagnið í lok mánaðarins.