Smellin smáatriði!
Fröken Fabjúlöss er dottin í svo svakalegt jólaskap að annað eins hefur ekki sést svo lengi sem elstu menn muna! Jólaljós eru farin að sjást í einum og einum glugga og þá finnst Frk Fab kominn tími á að fara að jólarokka lúkkið!
Fröken Fabjúlöss hefur nú löngum verið þekkt fyrir að spássera um aðventuna með jólastafamunstur á nöglunum, enda er svo einfalt að snuddast og dúddast í því: Lakka neglurnar rauðar og gera svo hvítar rendur á ská yfir og voila- Jólaneglurnar mættar á svæðið!!
En þetta árið langaði okkur hérna í tískunafla Skagafjarðar að taka hlutina skrefinu lengra og jóla neglurnar fyrir allann peninginn og var stuðst við góðvinkonu okkar, hana Google í heimildasöfnun! Þar sem svo margar hugmyndir fundust ákvað Fröken Fabjúlöss að deila þessu með fegurðardísunum sínum! Við sjáum myndir:
