Snjóbrettakappinn á sjúkrahúsi Sauðárkróks
Ungur snjóbrettakappi á Akureyri, Halldór Helgason, á langt myndskeið í snjóbrettamyndinni Never Not sem framleidd er af Nike og er af mörgum talin vera ein magnaðasta snjóbrettamynd ársins. Í myndskeiðinu sést Halldór stökkva af þaki dekkjaverkstæðis Höldurs við Glerártorg og lendir eftir snúning á þaki Blómabúðarinnar Býflugan og blómið.
Þetta magnaða atriði hefur vakið mikla athygli en hinu veita kannski færri athygli að skömmu áður en stökkið er sýnt sést Halldór við æfingar á möninni þar sem áhaldahúsið á íþróttavellinum er staðsett. Þar mun hann hafa slasað sig aðeins þremur dögum fyrir stökkið mikla og í myndskeiðinu sést hvað Örn læknir og fleiri starfsmenn sjúkrahússins á Sauðárkróki veita honum aðhlynningu.
http://www.youtube.com/watch?v=x43hvpR83us