Snjóflóð falla víða
Töluverður snjór hefur sest í gil og hlémegin í fjöll í N-NA áttinni á þriðjud. og miðvikud. Snjórinn kom ýmist ofan á eldri vindfleka eða hjarn, samkvæmt Veðurstofunni. Nokkur flóð féllu í áhlaupinu og hafa vélsleðamenn og skíðamenn sett af stað einhver flóð. Meðfylgjandi myndir sýna flóð sem fallið hafa á Höfðaströndinni, Hagafjallinu og Óslandshlíðarfjöllunum, í Skagafirði.
Veik lög eru í snjóþekjunni, lag með kornasnjó eða hagli og lagmótin við hjarnið. Snjóflóð geta fallið við lítið álag þar sem vindfleki náði að byggjast upp. Búast má við að snjóþekjan taki að styrkjast nú þegar hættir að skafa til fjalla.