Snorri Gunnarsson hlaut vinning í eldvarnargetraun
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór fram í grunnskólum landsins í nóvember sl. þar sem nemendur í 3. bekk fengu m.a. fræðslu um eldvarnir. Tóku þeir þátt í eldvarnagetraun slökkviálfanna Loga og Glóðar og er nú búið að draga úr réttum lausnum. Einn nemandi í Skagafirði var dreginn út og fékk að launum ýmsan nytsaman varning.
Sá heppni heitir Snorri Gunnarsson og er nemandi í Grunnskólanum austan vatna í Skagafirði. Það var Svavar Birgisson sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Skagafjarðar sem afhenti Snorra vinninginn.