Sólarhringsútsending frá Syðri-Hofdölum

Sent verður út frá fjárhúsunum á Syðri-Hofdölum í Skagafirði, hjá þeim Atla og Klöru, frá hádegi á Uppstigningardag (14. maí) til hádegis daginn eftir á ruv.is og RÚV 2.Fylgst verður með sauðburði og vonandi fæðast nokkur lömb í beinni útsendingu! Um leið kynnumst við hefðbundnum störfum bænda á sauðburði,“ segir í fréttatilkynningu frá RÚV.  

„Það eru ekki til mikið óræðari tákn um að sumarið sé á næsta leiti en blessuð litlu lömbin. Þau seinka ekki komu sinni  í þennan heim þótt hitastigið sé lægra en bæði menn og skepnur myndu helst óska. Sauðburður stendur nú sem hæst og það er ógleymanlegur tími fyrir þá sem eiga þess kost að fylgjast með litlu lömbunum skríða jarmandi í heiminn. RUV ætlar að gefa öllum landsmönnum kost á að fylgjast með sauðburði í beinni útsendingu í heilan sólarhring,“ segir í fréttatilkynningunni.

Um er að ræða fyrstu útsendingu sinnar tegundar á Íslandi og verður hún aðgengileg á ruv.is og á hliðarrás RUV, RÚV 2. Sem fyrr segir verður Gísli Einarsson, sjónvarpsmaður með meiru, á staðnum og spjallar við bændur og búalið. Stjórnandi útsendingarinnar verður Eggert Gunnarsson.

Fleiri fréttir