Sóldís með tónleika í Hólaneskirkju

Kvennakórinn Sóldís heldur tónleika í Hólaneskirkju á morgun, þriðjudaginn 16. apríl kl. 20:30. Söngstjóri kórsins er Sólveig S. Einarsdóttir, undirleikari er Rögnvaldur Valbergsson og einsöngvarar eru Ólöf Ólafsdóttir og Sigríður Margrét Ingimarsdóttir.

Miðaverð er kr. 2.500 en vakin er athygli á því að ekki verður hægt að greiða með greiðslukorti.

Hér má sjá myndband af kórnum sem FeykirTV tók fyrir árlegu kvennadagstónleika kórsins.

http://youtu.be/iF9lwuaUnok

Fleiri fréttir