Sölmundur gerir lukku

Í Landanum í gær var hús tekið á honum Sölmundi sem er af skagfirskum ættum og þykir skrítinn í hæsta máta. Sölmundur er reyndar tilbúningur, skapaður af Sæþóri Má Hinrikssyni frá Syðstu-Grund en hann hefur dundað sér við að mynda kappann og klippt saman í vídeó og sett á YouTube. Til þess að fullkomna verkið þá leikur Sæþór hinn undarlega Sölmund sjálfur.

Feykir hefur fengið leyfi hjá Sæþóri til að birta myndböndin og hver veit nema einsetumaðurinn Sölmundur eigi eftir að verða stórstjarna einn góðan veðurdag.

Hér sjáum við Sölmund:

http://www.youtube.com/watch?v=Caxhn5HNnFQ&feature=player_detailpage

Fleiri fréttir