Sölusýning í Víðidalstungurétt

Stóðréttir verða í Víðidalstungurétt þann 1. október næstkomandi. Fyrirhugað er að halda sölusýningu samhliða réttunum.

Hestamannafélagið Þytur hvetur þá sem vilja taka þátt að hafa samband fyrir 25. september, í póstfangið isolfur@laekjamot.is.

Æskilegt er að fram komi í skráningunni stutt lýsing á hrossinu, hver umsjónarmaður þess er og símanúmer hans. Einnig þarf að koma fram IS-númer, nafn og litur hests og hver faðir hans og móðir er. Sömuleiðis þarf að setja hrossið einn af eftirfarandi verðflokkum:

  • 0-400.000
  • 400.000-800.000
  • 800-1.200.000
  • 1.200.000-1.800.000
  • 1.800.000+

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Þyts.

Fleiri fréttir