Sophie Grace „rúllar“ upp Adele

Það er óhætt að segja að Adele-æði hefur gripið um heiminn en söngkonan hefur verið að raka inn hverjum verðlaununum á eftir öðrum en hún kom meðal annars, sá og sigraði á Grammy- og Brit tónlistarverðlaunahátíðunum. Þær eru ófáar litlu stelpurnar sem horfa á söngdívuna með aðdáunar augum og vilja verða söngstjörnur, alveg eins og Adele.

Hér má sjá hina stórskemmtilegu átta ára hæfileikamær Sophie Grace koma fram, ásamt Rosie, fimm ára systur sinni í þætti hennar Ellen og ekki er ólíklegt að við fáum að sjá meira af henni í framtíðinni.

http://www.youtube.com/watch?v=AIUx_mWSTCk&feature=fvwrel

Hér má sjá hnátuna rappa Moment 4 Life eftir bandarísku rappkonuna Nicki Minaj og fer létt með það!

http://www.youtube.com/watch?v=vPbY5ht6FtU&feature=branded

Fleiri fréttir