Sóttu tuttugu og fimm kindur í Staðarafrétt
Farið var til eftirleita í Staðarafrétt sl. laugardag og náðust tuttugu og fimm kindur, sem voru víða af upprekstrarsvæðinu. Flestar voru kindurnar úr Hegranesi, eða níu talsins, sjö voru af Reykjaströnd, fimm úr Gönguskörðum, tvær af Langholti, eitt lamb frá Sauðárkrók og eitt úr Húnavatnssýslu.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Samstarf Skagafjarðar og Sýndarveruleika til umræðu í sveitarstjórn
Í fundargerð sveitarstjórnar Skagafjarðar frá því 23. nóvember kom fram að samtal hefur staðið yfir milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og forsvarsmanna Sýndarveruleika ehf. um framtíðarfyrirkomulag og nýtingu húsnæðisins að Aðalgötu 21 eða gömlu Gránu og gamla samlaginu. Fram kemur að markmiðið sé að byggja áfram á þeirri starfsemi sem þar er fyrir, en jafnframt skapa forsendur fyrir fjölbreyttari starfsemi og betri nýtingu húsnæðisins. Töluverð umræða skapaðist um málið og ekki allir á eitt sáttir.Meira -
Skemmtileg hefð í Varmahlíðarskóla
Það er árleg hefð í Varmahlíðarskóla að vera með jólatré fyrir framan skólann og að nemendur í 4. bekk sæki það og það hefur þegar verið gert. Nemendur örkuðu af stað með umsjónarkennurum og húsverði, fundu gott tré, söguðu það niður og báru það heim í skólann.Meira -
Maddie gefur okkur gríðarlega orku og stemningu í hópinn
„Ég var virkilega ánægður með stelpurnar i þessum leik, þetta var alls ekki auðvelt og ég var ánægður með hvað allar stigu upp og lögðu sitt af mörkum. Frábær liðssigur,“ sagði Hlynur Freyr Einarsson þjálfari kvennaliðs Tindastóls sem bar sigurorð af liði Ármanns í Bónus deildinni í gærkvöldi. Feykir tók púlsinn á þjálfaranum í morgun.Meira -
Allir sem mættu voru jákvæðir
Í gær var fundað á Kaffi Krók þar sem kynnt var hugmynd að Bæjarhátíð á Sauðárkróki. Það var Ómar Bragi Stefánsson sem kynnti hugmyndina en hann hefur í dágóðan tíma unnið að þessu. „Fundurinn tókst ljómandi vel held ég bara. Það mættu um 30 manns sem ég held að sé ágætt. Margir höfðu sent mér pósta og sögðust því miður ekki geta mætt, þannig að ég held að þetta hafi bara sloppið,“ sagði Ómar þegar Feykir spurði hann hvort fólk hefði verið áhugasamt.Meira -
Birna hættir sem sýslumaður á Norðurlandi vestra um mánaðamótin
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 24.11.2026 kl. 11.36 oli@feykir.isBirna Ágústsdóttir, sýslumaður á Norðurlandi vestra og settur sýslumaður á Vesturlandi, mun láta af embætti sýslumannsins á Norðulandi vestra og sem settur sýslumaður á Vesturlandi þann 1. desember nk. Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að frá þeim tíma mun hún koma að undirbúningi nýs sameinaðs embættis sem mun taka til starfa 1. janúar nk. en þá tekur hún við starfi staðgengils sýslumanns.Meira
