Sparisjóður Skagafjarðar styður Golfklúbb Sauðárkróks

Sparisjóður Skagafjarðar og Golfklúbbur Sauðárkróks hefur undirritað samkomulag til þriggja ára þess efnis að Sparisjóðurinn verður einn af helstu styrktaraðilum golfklúbbsins. Sparisjóður Skagafjarðar er nú sem áður öflugur stuðningsaðili við íþrótta-, menningar- og samfélagsmálefni heima í héraði.

Meðlimir í Golfklúbbi Sauðárkróks eru um 170 manns en hann var stofnaður árið 1970 að undirlagi Rotaryklúbbs Sauðárkróks og nokkurra áhugamanna um golfíþróttina. Starf klúbbsins hófst þó ekki að ráði fyrr en upp úr 1977 og var þá farið í framkvæmdir við golfvöll.

Hlíðarendavöllur var lagður á árunum 1980-1983 en völlurinn er í hópi lengstu golfvalla landsins. Af hvítum teigum er völlurinn tæplega 6000 metrar. Af gulum 5636 metrar og af rauðum 4876 metrar.

Samkvæmt heimasíðu klúbbsins hafa einstaklingar innan klúbbsins náð eftirtektarverðum árangri í einstaklingskeppni og unglingasveitir klúbbsins hafa í þrígang orðið Íslandsmeistarar.

Fleiri fréttir