Spennan magnast í Domino's deildinni - Tindastóll tekur á móti Haukum í kvöld

Í kvöld taka Stólarnir á móti Haukum í annað sinn í þessari í fjögra liða úrslitum í Domino's deildinni og hefst leikurinn kl. 19:15. „Núna viljum við sjá Síkið fyllast af stuðningsmönnum og sýnum landsmönnum hvernig alvöru stuðningsmenn styðja sitt lið, og það í beinni útsendingu á stöð2 sport,“ segir á heimasíðu Tindastóls.

„Tindastóll leiðir einvígið 2-0 og með sigri senda þeir Hauka í sumarfrí,“ segir ennfremur á vefnum en Stólarnir þurfa þrjá sigra til að komast í úrslitaleikinn.

Auk hörku spennandi leiks á milli liðanna verður danssýning í hlé og skotleikur Domino´s á vísum stað en hann gengur út á að fjórum boltum er kastað upp í stúku og fá þeir sem að grípa þá að spreyta sig á vellinum, sá sem hittir fær ársbirgðir af Dominos-pizzum að launum.

Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir