Spennandi keppni á sterku WR móti
WR hestaíþróttamóti UMSS og Skagfirðings var haldið á Hólum 21. maí siðast liðinn. Þetta var fyrsta stórmótið sem hestamannafélagið Skagfirðingur stóð fyrir og tókst það prýðilega. Þetta var einnig fyrsta mótið á nýjum keppnisvelli á Hólum og því fín prufukeyrsla fyrir komandi Landsmót.
Útskriftarsýning þriðja árs nema á Hólum fór fram um miðjan dag á laugardeginum. Mótið fór vel fram og í meistaraflokki sáust nokkrar stórglæsilegar sýningar með háum einkunnum. Mette Manseth og Viti frá Kagaðarhóli unnu örugglega í tölti með 8,39 í aðaleinkunn. Í fjórgangi meistara var það Artemisia Bertus sem vann örugglega á Korgi frá Ingólfshvoli með 7,87 í aðaleinkunn. Í fimmgangnum voru þau Mette Manseth á Karli frá Torfunesi og Þórarinn Eymundsson á Narra frá Vestri-Leirárgörðum jöfn í úrslitum en hlutu þau bæði 7,38 í einkunn en Mette vann á sætaröðun hjá dómurum. Gísli Gíslason vann gæðingaskeiðið á Trymbli frá Stóra-Ási og hlutu þeir 7,83 í einkunn.
Ísólfur Líndal Þórisson tók fyrsta og annað sæti í 100 metra skeiði með tímana 7,87 og 7,94 á þeim Korða frá Kanastöðum og Viljari frá Skjólbrekku. Í slaktaumatölti var það Finnbogi Bjarnason keppti upp fyrir sig og sigraði með einkunnina 7,25. Finnbogi var atkvæðamestur í ungmennaflokki, sigraði bæði í fjórgangi og fimmgangi. Sigurvegari í samanlögðum fimmgangsgreinum var Hlynur Guðmundsson á Orku frá Ytri-Skógum. Sigurvegari í samanlögðum fjórgangsgreinum var Sina Sholz á Nóa frá Saurbæ.
Mótanefnd vill koma á framfæri kærum þökkum til styrktaraðila mótsins sem voru Arion banki, Kaupfélag Skagfirðinga, Landsbankinn, Sauðárkróksbakarí og Vörumiðlun.