Spurning dagsins
Fyrr í dag fóru nemendur sem voru í starfskynningu hjá Feyki í Skagfirðingabúð og báru upp spurningu sem hljóðaði svona: Heldur þú að það eigi eftir að gjósa aftur á Íslandi á þessu ári? Viðmælendur svöruðu þessu.
Ragnar Rögnvaldsson: Nei.
Símon Ólason og hún Sigríður Björg Gísladóttir segja að það eigi eftir að gjósa í Kötlu næsta haust.
Sigurður Gunnarsson segir að það eigi eftir að gjósa aftur í Vatnajökli.
Brynhildur Sigtryggsdóttir: Vonandi ekki.
/Sævar Óli Valdimarsson, Jórunn Rögnvaldsdóttir og Dagur Bjarki Sigurðsson.