Staða skólastjóra Varmahlíðarskóla auglýst laus til umsóknar

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur auglýst stöðu skólastjóra við Varmahlíðarskóla lausa til umsóknar en Ágúst Ólason hefur þjónað stöðu skólastjóra þar undanfarin tvö skólaár. Í auglýsingu segir að leitað sé eftir öflugum og framsýnum leiðtoga sem er tilbúinn að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í héraðinu. Umsóknarfrestur er til 14. apríl nk.

Í starfinu felst ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi. Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi og jafnframt ábyrgð á samstafi við heimili og samfélag.

Umsækjandi skal hafa starfsheitið grunnskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á grunnskólastigi. Einnig skal hann hafa reynslu af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi. Hæfni í mannlegum samskiptum og metnað, skipulagshæfni og leiðtogahæfileika.

Leitað að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi

„Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum, er metnaðarfullur, skapandi og áhugasamur um nærsamfélagið. Skólastjóri skal vera reiðubúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi. Hann starfar í nánu samstarfi við sviðstjóra og aðra stjórnendur á fjölskyldusiði og tekur þátt í verkefnum sem snúa að þróun í skólamálum í Skagafirði. Æskilegt er að skólastjóri hafi búsetu í Varmahlíð eða nágrenni. Staðan er laus frá 1. ágúst nk. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf fyrr. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ,“ segir í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónhornsins.

Nánari upplýsingar veitir Herdís Á. Sæmundsdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs í síma 455 6000 og á netfanginu has@skagafjordur.is. Umsóknir má senda rafrænt á fyrrgreint netfang eða skila í Ráðhúsið á Sauðárkróki í umslagi merktu : „Umsókn um starf skólastjóra“. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Fleiri fréttir