Staða skólastjóra við Varmahlíðarskóla laus til umsóknar

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur auglýst stöðu skólastjóra við Varmahlíðarskóla laust til umsóknar. Í auglýsingunni segir að leitað sé að öflugum og framsýnum leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í héraðinu.

„Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum, er metnaðarfullur, skapandi og áhugasamur um nærsamfélagið. Skólastjóri skal vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi. Hann starfar í nánu samstarfi við sviðsstjóra og aðra stjórnendur á fjölskyldusviði og tekur þátt í verkefnum sem snúa að þróun í skólamálum í Skagafirði. Æskilegt er að skólastjóri hafi búsetu í Varmahlíð eða nágrenni,“ segir í auglýsingunni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

Umsækjandi skal hafa starfsheitið grunnskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á grunnskólastigi sbr. 12. gr. laga nr. 87/2008. Reynslu af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi. Hæfni í mannlegum samskiptum. Metnað, skipulagshæfni og leiðtogahæfileika.

Staðan er laus frá 1. ágúst. nk. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf fyrr. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir