Staðarskálamót 2011
Hið goðsagnakennda Staðarskálamót í körfubolta verður haldið í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga daganna 28. og 29. desember nk. Mótið hefst kl. 18:00 báða dagana, skráningar í síma: 865-2092 (Steini) og 897-4658 (Höddi Gylfa). Skráningu lýkur 27. des.
Dregið verður í riðla kl. 12:05 í kaffihorni KVH þann 28. des og hægt verður að sjá uppröðun leikja skömmu síðar á heimasíðu ungmennasambandsins, USVH.IS.
Samkvæmt heimildum fréttaritara mótsins eru 25 ár síðan fyrsta Staðarskálamótið var haldið og hefur það verið stór þáttur af helgihaldi körfuboltaáhugamanna þau ár. -Nú er um að gera að smala í lið og skrá það á þetta magnaða mót, þar sem ungmennafélagsandinn berst fyrir hverju frákasti og spenntir áhorfendur hvetja hvern þann sem mætir, segir á heimasíðu USVH en einnig er minnt á að það á ekki að vera að svamla í áfengum drykkjum á meðan þessi helgistund stendur yfir.
U.S.V.H. mun heiðra íþróttamann ársins á fyrri keppnisdeginum um klukkan 19:00.