Stærri og bjartari Vínbúð á Sauðárkróki

Jóna og Guðrún Brynja brosmildar í Vínbúðinni.
Jóna og Guðrún Brynja brosmildar í Vínbúðinni.

Framkvæmdir standa nú yfir við Vínbúðina á Sauðárkróki þar sem verið er að færa innganginn sunnan við húsið, nær bílastæðinu sem er staðsett vestan við búðina. Búðin verður um leið stækkuð og gerð bjartari. „Verið er að taka allt í gegn bæði lager og búð,“ sagði Jóna Björk Sigurðardóttir, verslunarstjóri Vínbúðarinnar, í samtali við Feyki.

Ekki er reiknað með að loka þurfi versluninni í lengri tíma meðan á framkvæmdum stendur en stöku daga gæti þurft að loka. Þegar Jóna er spurð hvort breyting verður á úrvali verslunarinnar svarar hún að það eigi eftir að koma í ljós. „Það kemur ekki kælir, því miður, það eru svo margir sem spyrja að því,“ sagði Jóna Björk ennfremur.  Áætlað er að framkvæmdir taki um mánuð og er stefnan á að opna um 9. júní. 

Í frétt í 17. tölublaði Feykis fyrr í vikunni var sagt að Jóna María Grétarsdóttir væri verslunarstjóri Vínbúðarinnar en rétt er að það er Jóna Björk Sigurðardóttir, eins og fram kemur hér að ofan. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mistökum.

Fleiri fréttir