Starfsfólki hefur fjölgað um 18
Vísir greinir frá því að Sjávarleður hf. á Sauðárkróki hefur aukið framleiðslu sína um 85 prósent það sem af er ári, ef miðað er við sama tíma í fyrra. Stóraukin eftirspurn eftir íslensku roði erlendis er helsta ástæða þess, segir María K. Magnúsdóttir, markaðs- og sölustjóri fyrirtækisins. "Í kjölfarið höfum við líka fjölgað starfsfólki úr tólf í þrjátíu í húsi," segir María.
Heimsþekkt tískuhús og -hönnuðir eru á meðal mikilvægustu viðskiptavina Sjávarleðurs. Má þar nefna tískurisa á borð við Dior, Louis Vuitton og Hugo Boss, sem hafa nýtt afurðir fyrirtækisins í hátískuvöru.