Stefán R. Gíslason sæmdur fálkaorðu
Ólafur Ragnar Grímsson forseti veitti 14 manns heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Þeirra á meðal var Skagfirðingurinn Stefán R. Gíslason tónlistarkennari og kórstjóri í Varmahlíð.
Stefán hlaut riddarakross fyrir framlag sitt til tónlistarlífs á landsbyggðinni. Þeir sem voru sæmdir voru fálkaorðuna í dag eru:
1. Aron Björnsson yfirlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi skurðlækninga og heilbrigðismála.
2. Egill Ólafsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og leiklistar.
3. Einar Jón Ólafsson kaupmaður, Akranesi, riddarakross fyrir framlag í þágu heimabyggðar.
4. Guðjón Friðriksson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta og söguritunar.
5. Inga Þórunn Halldórsdóttir fyrrverandi skólastjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir störf á vettvangi menntunar, uppeldis og fjölmenningar.
6. Jóhann Sigurjónsson sjávarlíffræðingur og forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu á vettvangi fiskirannsókna og hafvísinda.
7. Jón Egill Egilsson sendiherra, Reykjavík, stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu.
8. Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og kvikmyndagerðar.
9. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íþróttahreyfingar.
10. Margrét Lísa Steingrímsdóttir þroskaþjálfi, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu fatlaðra barna og velferðar.
11. Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri, Reykjavík, stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu.
12. Stefán Reynir Gíslason tónlistarkennari og kórstjóri, Varmahlíð, riddarakross fyrir framlag til tónlistarlífs á landsbyggðinni.
13. Steinunn Briem Bjarnadóttir Vasulka listamaður, Bandaríkjunum, riddarakross fyrir frumkvæði og nýsköpun í myndlist.
14. Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og fyrrverandi formaður Sóknar, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu verkalýðshreyfingar og velferðar.