Stefán sigraði The Biggest Loser Ísland

Sauðkrækingurinn Stefán Ásgrímur Sverrisson sigraði í keppninni The Biggest Loser Ísland sem send var út frá Háskólabíói á Skjá Einum í kvöld. Fagnaði Stefán ógurlega þegar þau lágu fyrir, enda greinilegt að hann hefur lagt hart að sér til að ná þessum magnaða árangri.

Í upphafi keppninnar var Stefán, sem starfar sem pökkunarmaður í Steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki, 153,1 kg en er nú 93,7 sem þýðir að hann hefur misst 59,4 kg. Samsvarar það nærri 40% af upphaflegu þyngdinni. Hópur vinnufélaga, vina og ættingja Stefáns fylgdist með keppninni og eru fleiri myndir frá henni væntanlegar á feykir.is á morgun.

Fleiri fréttir