Stefnir í hörkugott Króksblót

Það stefnir allt í fjölmennt Króksblót á Sauðárkróki um helgina en nú þegar hafa yfir 500 manns tryggt sér miða sem er á pari við blótið í fyrra. Það er árgangur 1958 sem sér um undirbúning þessa þorrablóts og mun síðan afhenda keflið til árgangs 1959 sem mun halda utan um þorrablótið 2012.

Dagskráin verður fjölbreytt að sögn blótshaldara og í höndum valinkunnra Króksara. Að loknu borðhaldi verður dansleikur með Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.

Húsið verður opnað kl. 19:15 og hefst blótið klukkan 20:00 laugardaginn 5. febrúar, gestir taka sjálfir með sér mat, drykki og allt annað sem nauðsynlegt er við borðhaldið.

Miðasala hófst mánudaginn 10. janúar í Blóma- og gjafabúðinni og lauk formlega í gær en hægt er að nálgast miða í dag fyrir þá sem sváfu á verðinum og hina sem þurfa að bæta við miðum. Miðinn kostar 2500 krónur í beinhörðum peningum þar sem ekki er tekið við kortum.

Fleiri fréttir