Steinullin gjaldgeng í vistvænar byggingar

Gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi Steinullar hf. á Sauðárkróki hafa nú verið vottuð samkvæmt ISO 9001:2008 og ISO 14001:2004 stöðlunum. Vottunin nær yfir framleiðslu og sölu á steinullinni og einnig er hráefnatakan á Sauðárkróki innan kerfisins. Þar með eru afurðir Steinullar hf gjaldgengar sem byggingarefni í vistvænar byggingar.

Framleiðsla Steinullar hf. er um margt einstök varðandi umhverfisáhrif. Hráefnið kemur ekki úr grjótnámu og ekki er notað jarðefnaeldsneyti til að bræða grjótið, sem er hin hefðbundna aðferð. Í staðinn eru notaðir íslenskir endurnýjanlegir orkugjafar við framleiðsluna en ekki er síður athyglisverð hráefnatakan úr fjörunni á Sauðárkróki þar sem umhverfisáhrif eru ekki merkjanleg eftir nærri 30 ára starfssemi fyrirtækisins. Segja má að náman endurnýi sig sjálf með framburði Héraðsvatna, sem sjórinn skilar upp í fjöruna.

Miðað er við kröfur BREEAM matskerfis, sem var byggt upp í Bretlandi en hefur hlotið talsverða útbreiðslu í Evrópu og víðar. Þau viðmið sem þar eru sett ryðja sér nú mjög rúms og grundvallast á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.

Undirbúningur vottananna hófst í byrjun árs 2011 og hlaut gæðastjórnunarkerfið vottun í
september 2012 og umhverfisstjórnunarhlutinn var síðan vottaður í apríl síðastliðnum.
Steinull naut ráðgjafar fyrirtækisins 7.is við innleiðingu kerfanna en alþjóðlegi vottunaraðilinn
VTT, Technical Research Centre í Finnlandi annaðist vottunarferlið. ISO staðlarnir eru alþjóðleg viðmið í viðskiptum milli fyrirtækja og viðurkenndir til að auka
hagkvæmni og skilvirkni í rekstri.

Þrátt fyrir hrun íslenska byggingamarkaðarins hefur rekstrarafkoma Steinullar hf. verið
viðunandi enda efnahagur fyrirtækisins afar traustur og það verið í hópi „ Framúrskarandi
fyrirtækja“, allt frá því að CREDITINFO fór að veita þær viðurkenningar.

Fleiri fréttir