Stjarnan mætir í Síkið í kvöld
Fyrsti heimaleikur Tindastóls í Dominos-deildinni í körfubolta fer fram í Síkinu í kvöld en þá koma leikmenn Stjörnunnar í heimsókn. Bæði liðin unnu leiki sína í fyrstu umferðinni; Tindastóll lagði lið ÍR en Garðbæingar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu meistara KR í miklum háspennuleik.
Það má því reikna með hörkuleik í kvöld en það er skarð fyrir skildi í liði Tindastóls því Jerome Hill er enn ekki kominn með leikheimild. Frétt Feykis sl. föstudag þess efnis að Hill væri kominn með leikheimild var því miður ekki á rökum reist og er beðist velvirðingar á því. Tindastólsmenn gera sér þó vonir um að málin leysist nú í vikunni.
Stuðningsmenn Tindastóls eru því hvattir til að fjölmenna í Síkið í kvöld og styðja duglega við bakið á sínum mönnum. Áfram Tindastóll!