Stóðsmölun og stóðréttir í Víðidalstungurétt
Nú eru aðeins örfáir dagar í stóðsmölun og stóðréttir í Víðidalstungurétt í Víðidal en föstudaginn 30.september verður stóðinu smalað til byggða.
Gestir sem ætla að taka þátt í stóðréttargleðinni er bent á að fara af stað frá Hrappstöðum á föstudaginn, um kl. 10. Þeir sem ætla að vestan geta mætt í Valdarásrétt um hádegi. „Svo er líka mögnuð sjón að mæta bara síðdegis til að sjá stóðið renna heim í sveitina,“ eins og segir í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum Víðidalstunguréttar.
Á föstudaginn er öllum boðið í kaffi í skemmuna á Kolugili og um kvöldið í kjötsúpu í Víðigerði eða hjá Siggu og Jóa á Gauksmýri.
Laugardaginn 1. október verður stóðið rekið til Víðidalstunguréttar stundvíslega kl. 10 og hefjast þá réttarstörf. Þar má jafnan sjá fjölda efnilegra unghrossa, uppboð verður á gæðingsefnum og sölusýning um hádegið. Í réttinni stendur Kvenfélagið Freyja fyrir happdrætti og fæst miði með því að versla veitingar af félaginu, þar sem aðalvinningurinn verður folald!
Á laugardagskvöldið er dansleikur í Víðihlíð, þar sem hljómsveit Geirmundar heldur uppi sveiflunni eins og honum einum er lagið.