Stóladrengir Íslandsmeistarar
Unglingaflokkur Tindastóls í körfu tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á laugardaginn þegar drengirnir mættu FSu í Stykkishólmi þar sem leikið var til úrslita. Það má með sanni segja að tímabilið hafi verið fullkomið hjá Stólunum sem þeir unnu alla sína leiki á Íslandsmótinu.
Leikurinn var jafn og hörkuspennandi frá upphafi til enda. Stóladrengir voru yfir í hálfleik 46-36, FSu komu sér inn í leikinn með seiglu í þriðja hluta og voru einu stigi undir 56-55 eftir hann. Stólarnir voru þó áræðnari undir lokin og uppskáru nauman sigur með lokatölurnar 74-71.
Viðar Ágústsson fékk viðurkenningu fyrir mann leiksins með 13 stig, 17 fráköst auk framlagsstiga. Stigahæstir hjá Tindastól voru Ingvi Rafn með 20 stig og Pétur Rúnar með 17 stig.
Nánari leiklýsingu má lesa á karfan.is.