Stólarnir enduðu í tíunda sæti

Síðasta umferðin í Iceland Express deildinni í körfubolta fór fram í gærkvöldi. Tindastólsmenn brunuðu alla leið suður með sjó og spiluðu við spræka Njarðvíkinga sem hafa verið að fínpússa sinn hóp síðustu vikurnar. Þeim þótti ástæða til að draga fram úr erminni Brenton Birmingham í gærkvöldi til að hita kappann upp fyrir úrslitakeppnina. Njarðvíkingar voru sterkari aðilinn í gær og unnu nokkuð öruggan sigur, 96-84.

Jafnræði var með liðunuum í fyrsta leikhluta en eins og svo oft áður í vetur byrjuðu Stólarnir leikinn ágætlega. Njarðvíkingar höfðu þó yfir 27-24 að fyrsta leikhluta loknum. Bilið jókst síðan smá saman í öðrum leikhluta og þegar gengið var til búningsherbergja í hálfleik voru heimamenn með 11 stiga forskot, 53-42.

Áfram héldu Njarðvíkingar að bæta við muninn framan af þriðja fjórðungi og þeir voru 18 stigum yfir fyrir lokafjórðunginn, staðan 81-63. Tindastólsmenn náðu að klóra í bakkann í fjórða leikhluta, Njarðvíkingum gekk illa að skora framan af leikhlutanum og smátt og smátt saxaðist á forskotið. Þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir var munurinn kominn niður í 6 stig en þá spýttu heimamenn í lófana og kláruðu leikinn af öryggi. Lokatölur 96-84.

Hayward Fain átti fínan leik í gærkvöldi, gerði 23 stig og tók 13 fráköst. Þá gerði Sean Kingsley Cunningham 18 stig, tók 6 fráköst og átti 5 stoðsendingar. Rikki var með 15 stig og Svabbi 11. Líkt og í síðustu leikjum náði Kita sér ekki í gang og lék reyndar aðeins í tæpar 16 mínútur í gær. Eftir úrslitin í gær var ljóst að lið Tindastóls endaði í tíunda sæti í deildinni, með 14 stig líkt og Hamar Hveragerði en Stólarnir höfðu betur í innbyrðisviðureignum liðanna í vetur og það eru því Hvergerðingar sem falla ásamt liði KFÍ frá Ísafirði. Lið Tindastóls hóf leiktíðina á að tapa fimm fyrstu leikjum sínum en hörmulegra var að liðið tapaði sjö síðustu leikjum sínum í deildinni.

Stig Tindastóls: Fain 23, Cunningham 18, Rikki 15, Svabbi 11, Kita 7, Pálmi 5, Helgi Freyr 3 og Helgi Rafn 2.

Fleiri fréttir