Stólastúlkur áfram í Borgunarbikarnum

Stelpurnar í Tindastóli komu ákveðnar til leiks í Borgunarbikarnum í gærkvöldi er þær öttu kappi við Völsung frá Húsavík. Leikurinn var heimaleikur Tindastóls en vegna þeirra aðstæðna sem fótboltinn á Sauðárkróki býr við um þessar mundir fór hann fram í Boganum á Akureyri.

Stólastúlkur komust í 3-0 á fimm mínútna kafla og voru bandarísku stúlkurnar þar í aðalhlutverki. Leslie Briggs setti boltann í netið á 26. mínútu og svo annað mínútu síðar. Landa hennar Carolyn Polcari skoraði svo stuttu síðar er 31 mínúta var liðin af leiknum. Hún var svo aftur á ferðinni rétt áður en flautað var til hálfleiks og staðan orðin 4-0 fyrir Tindastól.

Í seinni hálfleik virtust Stólastúlkur koma værukærar á völlinn því á 49. mínútu náði Helga Björk Heiðarsdóttir að minnka muninn fyrir Völsung svo og liðsfélagi hennar Hulda Ósk Jónsdóttir sem skoraði á 61. mínútu. Fleiri mörk voru ekki skoruð og lokastaðan því 4-2.

Að sögn Guðjóns Arnar Jóhannssonar þjálfara Tindastóls koma erlendu stúlkurnar í liðinu mjög vel út og með þær innan borðs getur liðið leikið ofar á vellinum. Það skapi fleiri tækifæri fyrir framan mark andstæðinganna og sjálfstraust annarra liðsfélaga eflist.

 

Fleiri fréttir