Stöndum saman - afnemum verðbólgu
Mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu um verðtryggingu og af skiljanlegum ástæðum. Flest okkar sem eigum húsnæði höfum fjármagnað kaupin með verðtryggðum lánum sem hafa hækkað mikið s.l. ár , langt umfram þróun fasteignaverðs. Það hefur orðið þess að eigið fé húseiganda í fasteign sinni hefur minnkað og jafnvel orðið að engu.
Sjálfstæðisflokkurinn einn flokka með raunhæfar og útfærðar tillögur fyrir heimilin.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram tillögur sem miða að því að koma til móts við þennan fjölmenna hóp. Raunhæfar tillögur sem búið er að útfæra og hægt er að hrinda í framkvæmd strax. Tillögurnar miða að því að hægt sé að nýta sér skattaafslátt og innborgun í séreignalífeyrissjóð til að greiða inn á höfuðstól fasteignalána.
Meginverkefnið er efnahagslegur stöðugleiki
Verðtryggðar skuldir íslenskra heimila voru 1.300 milljarðar króna í árslok 2012, þegar skuldir heimila við Íbúðalánasjóð, Lánasjóð íslenskra námsmanna, innlánsstofnanir og lífeyrissjóði eru teknar saman. Það þýðir að ef skuldirnar yrðu lækkaðar um 300 milljarða í 1000 milljarða og verðbólga yrði t.d. 10% næstu 12 mánuði myndu lán heimilanna hækka um 100 milljarða á næstu 12 mánuðum og á næstu þremur árum væru lánin aftur komin í 1300 milljarða. Þetta sýnir okkur fram á að meginverkefnið er að halda verðbólgu í skefjum samhliða því að skapa raunverulegan hagvöxt, sem byggir á framleiðslu verðmæta, sem leiðir til hækkunar launa og ráðstöfunartekna fjölskyldna og heimila.
Forgangsverkefni að draga úr áhrifum verðtryggingar
Samhliða því þarf að leggja áherslu á að forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar verði markviss og tímasett áætlun um að verðtryggð húsnæðis- og neytendalán verði ekki almenn regla líkt og verið hefur. Heldur standi fólki til boða að taka óverðtryggð íbúðalán þar sem að áhættunni af verðbólgunni er skipt á milli lántaka og lánveitenda og er ekki bara varpað á heimilin í landinu.
Tökum höndum saman
Til þess að svo megi verða þarf það að vera forgangsverkefni þeirrar ríkisstjórnar sem tekur við eftir kosningar að hafa forgöngu um að skapa sátt í samfélaginu til þess að vinna okkur út úr þeirri stöðu sem uppi er í dag. Þar þurfa allir að koma að borðinu ríki, sveitarfélög, lífeyrissjóðir, samtök launþega, atvinnurekendur og íbúar þessa lands.
Mér hefur frá hausti 2008 þótt til fyrirmyndar hvernig sveitarfélög tóku á sínum fjármálum, fögnuðu setningu fjármálareglna og vinna nú af öryggi að því að koma sínum fjármálum í horf til samræmis við lög og reglur. Því vekur það athygli mína að lokafjárlög ríkisins (ríkisreikningur) fyrir árið 2011 séu samþykkt í mars 2013 og ríkið fari fram úr fjárlögum 10 – 12 % ár hvert. Framkvæmd fjárlaga verður að vera með ábyrgum hætti. Þetta er einn stærsti þátturinn í því að afnema verðbólgu á Íslandi.
Sjálfstæðisflokkurinn einn flokka samþykkti ályktun á landsfundi í febrúar s.l. um skýra stefnumörkun í þessum málum, sem gefur tóninn inn í framtíðina. Hagstjórnin skiptir sköpum fyrir komandi kynslóðir til þess að halda uppi lífskjörum og atvinnu, til þess að halda verðlagi stöðugu, vaxtastigi hóflegu og skuldum hins opinberra innan skynsamlegra marka. Tökum öll höndum saman um hagstjórn landsins.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi