Stór áfangi í sögu Selaseturs

Stórum áfanga í sögu Selaseturs Íslands var náð með undirritun samnings setursins við Hafrannsóknastofnun í gær. Samningurinn hljóðar upp á 40 milljónir króna.
Af þessum 40 milljónum eru 10 milljónir eingreiðsla stofnkostnaðar vegna tækjakaupa og standsetningar húsnæðis, en 30 milljónir renna til líffræðirannsókna á selastofninum við Íslandsstrendur. Vonir standa til að rannsóknastyrkurinn verði áframhaldandi.
Á heimasíðu sinni þakkar Selasetrið öllum þeim fjölmörgu sem að málinu hafa komið og lítur björtum augum til framtíðar selarannsókna á Íslandi.