Stór vika hjá körfuboltafólki
Það verður í mörg horn að líta hjá körfuboltafólki í Tindastól í vikunni. Hæst bera leikir meistaraflokksins á fimmtudag og laugardag, en einnig verða yngri flokkarnir á ferðinni.
Iceland Express deildin
Tindastóll etur kappi við Snæfellinga á morgun fimmtudag í IEX-deildinni. Snæfellingar tróna á toppi deildarinnar og eru ríkjandi Íslandsmeistarar. Þeir töpuðu óvænt fyrir KFÍ á Ísafirði í síðustu umferð. Leikurinn hefst kl. 19.15 á morgun og hægt er að fylgjast með honum í beinni tölfræðilýsingu á kki.is. Sigur í leiknum væri afar mikilvægur í þeirri miklu baráttu sem er í deildinni. Tindastóll lyfti sér upp um eitt sæti eftir sigurinn á ÍR, upp í það 6. og menn vilja gjarnan halda áfram að klifra upp töfluna.
Lengjubikarinn
Strax eftir leikinn við Snæfell halda strákarnir til Reykjavíkur, til að undirbúa sig fyrir undanúrslitaleikinn við KR, í Lengjubikarnum. Leikurinn verður í DHL-höllinni á laugardaginn kl. 16.00 og verður hann sýndir í ríkisstjónvarpinu fyrir þá sem ekki komast á leikinn. Vonast er til þess að fjöldi stuðningsmanna Tindastóls hópist í DHL-höllina og hjálpi liðinu í baráttunni við KR-inga. Tindastóll hefur aldrei komist í úrslitaleik bikarkeppninnar og ætla að selja sig dýrt í leiknum.
7. flokkur stúlkna
Stelpurnar spila í þriðju umferð Íslandsmótsins A-riðli í DHL-höllinni í Reykjavík um helgina. Þar etja þær kappi við Hrunamenn, Fjölni, KR og Keflavík. Þær spila við Hrunamenn kl. 11 á laugardag og við KR kl. 18 sama dag. Á sunnudaginn spila þær síðan við Fjölni kl. 10 og Keflavík kl. 13. Þjálfari stúlknanna er Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir.
9. flokkur drengja
Kári Marísson heldur með sína drengi í 9. flokki til Grindavíkur þar sem strákarnir spila í 3. umferð Íslandsmótsins í A-riðli. Þeir unnu B-riðilinn afar sannfærandi síðast og keppa nú á meðal þeirra bestu. Þeir spila við Hauka kl. 11 á laugardag og KR kl. 13.30. Á sunnudag eiga þeir leik við Grindavík kl. 9 og Stjörnuna kl. 11.30.
Körfuboltaskólinn og æfingar um helgina
Vegna þorrablótsins í íþróttahúsinu, verða engar æfingar um helgina, né körfuboltaskóli á sunnudagsmorguninn