Stórveisla á Króknum á föstudag

Hrossarækt.is stendur fyrir stóðhestasýningum norðan og sunnan heiða í byrjun apríl en föstudagskvöldið 1. apríl verður Stóðhestaveisla í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki þar sem heiðurshestur sýningarinnar verður höfðinginn Kjarval frá Sauðárkróki.

Yfir 30 stóðhestar eru skráðir til leiks og verður margt spennandi í boði. Hestarnir munu ýmist koma fram einir eða með öðrum, auk þess sem nokkrir hestar verða sýndir með afkvæmum.

Forsala á sýninguna er hafin hjá N1 á Norðurlandi, en hægt er að kaupa miða í Staðarskála, á Blönduósi, í Varmahlíð, á Sauðárkróki og á Akureyri. Miðaverð er kr. 2.900 og innifalið í því er glæsilegt og mjög veglegt stóðhestablað.

Jafnhliða sýningunum kemur út glæsilegt stóðhestablað sem gestir fá afhent, auk þess sem það verður til sölu í verslunum N1 og í hestavörubúðum. Hestarnir eru að auki allir kynntir á vefnum www.stodhestar.com.

Fleiri fréttir