Stúlka frá Sauðárkróki í viðtali hjá bandarískum vefmiðli
Viðtal við Ísabellu Guðmundsdóttur, unga stúlku frá Sauðárkróki, var birt á bandaríska vefmiðli The Tribune Review á dögunum. Ísabella er skiptinemi við Riverview High School í Pennsylvaníu, þar sem hún spilar einnig körfubolta.
Í viðtalinu segist henni líka afskaplega vel við sig í skólanum en áður en hún hóf nám við Riverview skólann var hún í öðrum skóla en flutti sig svo yfir til Riverview. „Þegar ég kom til Riverview byrjaði ég strax að eignast vini, allir buðu mig velkomna og voru mjög hjálpsamir,“ segir Ísabella í samtali við The Tribune Review.
Þjálfarinn hennar Keith Stitt sagðist einnig vera mjög ánægður með Ísabellu og að vera hennar í liðinu hefur haft mjög góð áhrif á krakkana og þjálfarana í skólanum. Hann segir Ísabellu vera færan leikmann með góða boltatækni og vera góða skyttu.
Á meðan Ísabella dvelur í Bandaríkjunum hefur hún notað tækifærið og farið á Harlem Globetrotters leik og vonast til þess að geta farið á leik í NBA deildinni einhversstaðar á austurströnd Bandaríkjanna.
Hér má lesa viðtalið í heild sinni.