Stúlknaflokkur tryggði sér sæti í úrslitakeppninni
Fjórir yngri flokkar í körfuboltadeild Tindastóls tóku þátt í síðustu umferð fjölliðamótanna um helgina og samkvæmt heimasíðu Tindastóls stóðu þeir sig heilt yfir vel.
Stúlknaflokkur sameiginlegs liðs Tindastóls og KFÍ tryggði sér sæti í úrslitakeppni þessa aldursflokks með því að sigra KR/Snæfell í hreinum úrslitaleik um 4. og síðasta sætið sem gefur kost á sæti í úrslitakeppninni. Stelpurnar sigruðu 36-33. Auk þessa leiks spiluðu stelpurnar við Val, Njarðvík og Keflavík og töpuðust allir þeir leikir.
8. flokkur stúlkna keppti í B-riðli í Hafnarfirði. Stelpurnar unnu einn leik en töpuðu tveimur. Fyrsti leikurinn var á móti KR b og lauk leiknum með sigri andstæðinganna 20-35. Annar leikurinn var við Hamar og á heimasíðu Tindastóls kemur fram að hann hafi farið vel. Þriðji leikurinn var á móti heimamönnum í Haukum og var leikurinn jafn en Tindastóll tapaði leiknum með einu stigi. Nánari leiklýsingu má sjá á heimasíðu Tindastóls.
11. flokkur drengja spilaði heimaleik í síkinu í B-riðli og unnu strákarnir báða leiki sína örugglega, annan gegn Hamar/Þór og hinn gegn Fjölni. Strákarnir ljúka því mótinu með sigri í B-riðli.
Strákarnir í 8. flokki spiluðu í fyrsta skiptið í B-riðli. Þeir hófu leiktíðina í E-riðli og hafa unnið sig alla leið upp í B. Strákarnir töpuðu mjög naumlega fyrir Skallagrími/Reykdælum, Njarðvík og Haukum, en unnu Valsmenn í úrslitaleik um hvort liðið héldi sér uppi.
Þá vann drengjaflokkurinn Valsmenn örugglega í Íslandsmótinu í Síkinu sl. sunnudag.
Helgina eftir páska heldur 4. umferð Íslandsmótsins áfram, en þá er röðin komin að 9. flokki stúlkna, 7. flokki drengja og 10. flokki drengja. Auk þess eiga drengjaflokkur og unglingaflokkur eftir að spila nokkra frestaða leiki.