Stútfull Sæluvikudagskrá morgundagsins
Það er heill hellingur af áhugaverðum og spennandi viðburðum á dagskrá í Sæluviku Skagfirðinga á morgun, 1. maí. Til dæmis opinn dagur hjá Skotfélaginu Ósmann, Bútasaumssýning í Kakalaskála, 50 ára afmæli Skagfirðingasveitar í Sveinsbúð, hátíðardagskrá stéttarfélaganna í Skagafirði, Sæluvikutónleikar og margt margt fleira.
Dagskráin er eftirfarandi:
12:00-18:00 Bókamarkaður Lafleur í Sæluviku
Til sölu og kynningar um 50 titlar eftir hina ýmsu höfunda, líka metsölubækur, á ótrúlegu verði. Gestum er boðið upp á lestur, glóðvolgar vöfflur og rjúkandi heitt kaffi að kostnaðarlausu.
13:00-16:00 Opinn dagur hjá Skotfélaginu Ósmann – Reykjaströnd
Opið verður á vallarsvæði Ósmanns á Reykjaströnd og starfsemi félagsins kynnt.
13:00-18:00 Bílskúrssala – Hólmagrund 4
Bílskúrssala þar sem ýmislegt er í boði eins og DVD-myndir og geisladiskar á kr. 100 stykkið, föt, lopavörur og ýmislegt handverk. Posi á staðnum.
14:00-17:00 Bútasaumssýning – Kakalaskálinn í Kringlumýri
Sýning á bútasaumi sjö vinkvenna. Allir hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar í símum 865-8227 og 861-8107.
14:00-17:00 Opið hús í Maddömukoti – Aðalgötu 16B
Handverk til sölu, heitt á könnunni og meðlæti.
14:00-17:00 50 ára afmæli Skagfirðingasveitar – Sveinsbúð
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit býður Skagfirðingum og öðrum gestum í opið hús í Sveinsbúð í tilefni 50 ára afmælis sveitarinnar. Búnaður sveitarinnar og aðstaða verður m.a. til sýnis og sagan rifjuð upp.
15:00 Hátíðardagskrá stéttarfélaganna í Skagafirði – Salur Fjölbrautaskóla Nl. vestra. Ræðumaður verður Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju og Starfsgreinasambands Íslands. Að venju verða kaffiveitingar og skemmtiatriði úr ýmsum áttum og eru félagsmenn hvattir til að mæta og fagna deginum saman.
20:00 Barið í brestina – Bifröst
Leikfélag Sauðárkróks sýnir Barið í brestina eftir Guðmund Ólafsson. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson.
20:00 Sæluvikutónleikar – Íþróttahúsið á Sauðárkróki
Söngskemmtun þar sem íslensk dægurlög verða flutt af hópi frábærra söngvara, s.s. Birgittu Haukdal, Kristjáni Gísla, Jógvani Hansen, Ölmu Rut, Róberti Óttars, Sigvalda Gunnars og Rúnari Erni Friðrikssyni. Eftir tónleika verður stórskemmtilegt ball með hljómsveitinni Von. Miðasala er hafin á tix.is, 5.900 kostar á skemmtun og ball. Það er hægt að kaupa bara á ballið og er sala við hurð, kostar 2.500 kr inn.