Styðja börn í gegnum ABC

Það voru stoltir nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga sem lögðu leið sína í Landsbankann með kennurum sínum í síðustu viku. Hver bekkur á yngsta stiginu í grunnskólanum hefur fengið það verkefni að styðja eitt barn í gegnum hjálparstarf ABC.

 

Þessir fjórir bekkir eru að styðja jafnaldra sína frá landinu Burkina Faso í Afríku og fær hver bekkur mynd og upplýsingar um barnið sem þau eru að styðja við bakið á. ABC hjálparstarfið gengur út á það að veita munaðarlausum, fátækum og umkomulausum börnum varanlega hjálp í formi skólagöngu, læknishjálpar og heimila þar sem þörf er á auk fæðis og klæða.

Hér má svo skoða blogg sem Gullý hjá ABC heldur úti í Burkina Faso fyrir vini og vandamenn.

/Norðanátt.is

Fleiri fréttir