Styrktarkvöld fyrir Björgunarsveitirnar
Veitingastaðurinn Ólafshús á Sauðárkróki ætlar að styrkja Björgunarsveitirnar í Skagafirði í dag, fimmtudaginn 22. nóvember og vera með pizzahlaðborð á milli kl. 17-22 þar sem ágóðinn mun renna beint til Skagfirðingasveitar á Sauðárkróki, Grettis á Hofsósi og Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð. „Meðlimir sveitanna 3ja eru búnir að standa sig eins og hetjur!“ segir í auglýsingu í Sjónhorninu.
Veitingahúsið Ólafshús á Sauðárkróki.
Björgunarsveitarmenn í Skagfirðingasveit segja gott að finna fyrir styrk í samfélaginu. „Þetta mun klárlega koma sér vel fyrir sveitina en nóg hefur verið að gera síðustu vikur hjá meðlimum hennar, eða núna þurfum við eiginlega að fara að tala um síðustu mánuði!,“ segir á heimasíðu sveitarinnar.
Á heimasíðunni kemur fram að björgunarsveitarmenn hafa verið að sinna u.þ.b. einu til þremur útköllum á dag sl. vikuna við ýmiskonar aðstoð. „Allt frá að draga rútu upp á veg, óveðursaðstoð innanbæjar á Króknum og fórum svo við meira að segja í að grafa upp hænsnakofa svo að það væri hægt að koma mat til þeirra,“ segir á heimasíðunni.