Styrktu Rauða krossinn með afrakstri smáköku- og límonaðisölu

Systurnar Klara og Lára Sigurðardætur á Lummudögum í sumar.
Systurnar Klara og Lára Sigurðardætur á Lummudögum í sumar.

Systurnar Klara og Lára Sigurðardætur söfnuðu í sumar 16.660 krónum til stuðnings Rauða krossinum í Skagafirði með því að selja smákökur og límonaði á Lummudögum. Rauði krossinn þakkar þessum framtakssömu systrum kærlega fyrir stuðninginn.

Á vef Rauða krossins rki.is segir  "Stuðningur tombólubarna á hverju ári er Rauða krossinum mjög mikils virði og er félagið þakklátt fyrir eljuna og dugnaðinn sem liggur að baki hverri tombólu og fjáröflun þessara yngstu sjálfboðaliða okkar. Tombólubörn söfnuðu rúmlega 1 milljón króna á síðasta ári og fór öll sú upphæð til styrktar börnum í Gambíu í Afríku."

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir