Styrkur til að vinna nýtt skipulag fyrir Glaumbæ
Ferðamálastofa hefur úthlutað Byggðasafni Skagfirðinga 2.550.000 kr. úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til að vinna nýtt skipulag fyrir safnsvæðið í Glaumbæ.
Samkvæmt heimasíðu Byggðasafnsins þarf að marka stefnu um það hvernig staðið skuli að uppbyggingu og viðhaldi svæðisins. Vinna þarf deiliskipulag fyrir safnsvæðið og skoða: nýja aðkomu bifreiða til að draga úr slysahættu, staðsetningu bílastæða, legu göngustíga og aðra stýringu safngesta.
Meðal þess sem þarf að skoða er einnig möguleg stækkun safnsvæðisins sem næði til jarðlægra fornleifa austan við núverandi safnsvæði.