Styttist í Gæruna tónlistarhátíð
Tónlistarhátíðin Gæran mun fara fram helgina 13-15 ágúst næstkomandi. Hátíðin í ár er haldin í sjötta skiptið og verður, eins og áður, í húskynnum Loðskinn á Sauðárkróki. Ný framkvæmdastjórn tók við á þessu ári með nýjum áherslum og hefur sett sér þau markmið að gera hátíðina fjölskylduvænni.
Mikil eftirsókn var fyrir að fá að spila á hátíðinni í ár, en um 65 hljómsveitir sóttu um og það var því mikil vinna að velja úr þeim frábæra hópi. Glæsilegur hópur tónlistarmanna kemur fram og gestum er lofað góðri skemmtun öll kvöldin þrjú. Meðal þeirra tónlistarmanna sem koma fram í ár eru Páll Óskar, Amabadama, Dimma, Bjartmar Guðlaugsson og margir fleiri.
Miðasala er í fullum gangi á www.tix.is og mun miðinn í forsölu kosta 6900 kr. Einnig mun vera hægt að nálgast miða í sölutjaldi hátíðarinnar og mun miðinn þá kosta 7900 kr.
Dagskrá hátíðarinnar er eftirfarandi:
-Sóló-
Gillon
Óskar Harðar
Axel Flóvent
Bergmál
Hemúllinn
-Fös-
Trukkarnir
Dalí
Röskun
Páll Óskar (a.k.a. Paul Oscar)
Lockerbie
DIMMA
Geirmundur Valtýsson
-Lau-
Vio – band
Alchemia band
Stafrænn Hákon
Lára Rúnars
Bjartmar Guðlaugsson
The Roulette
Amaba Dama