Suðræn kvöldmessa í Sauðárkrókskirkju
feykir.is
Skagafjörður, Uncategorized
20.11.2010
kl. 12.20
Sunnudaginn 21.nóvember verður kvöldmessa í Sauðárkrókskirkju kl.20 og að þessu sinni verður breytt út af vananum. Þegar dagarnir eru stuttir og kaldir er ekki úr vegi að láta hugann reika til suðrænni landa.
Í þessari kvöldmessu verður flutt ljúf tónlist ættuð frá Spáni og Suður- Ameríku. Góðir gestir hjálpa til við tónlistarflutning, hin frábæra söngkona Ásdís Guðmundsdóttir og hljóðfæraleikararnir Jóhann og Margeir Friðrikssynir.
Verið hjartanlega velkomin til kirkjunnar!