Sumaræfingar yngri flokka hófust í gær

Sumaræfingar yngri flokka körfuknattleiksdeildar Tindastóls hófust í gær en um hefðbundið sumarprógramm verður að ræða, eða tvær æfingar í viku fyrir krakka frá 6. - 10. bekk. Þjálfari í sumar verður Hreinn Gunnar Birgisson.

Æfingarnar verða fyrir krakka frá 6. - 10. bekk og verður aldursskipt á æfingunum eftir þörfum. Allar æfingar verða kl. 16.30 - 18.00 og mæta stelpur á mánudögum og miðvikudögum en strákar á þriðjudögum og fimmtudögum.

Æft verður til 13. júní, en þá verður tekið sumarfrí en æfingar hefjast svo aftur eftir sumarfrí mánudaginn 8. júlí. Sumaræfingarnar eru innifaldar í æfingagjöldum og því þarf ekki að greiða sérstaklega fyrir þær.

Fleiri fréttir