Sumartónleikar í Hóladómkirkju

Árlegir sumartónleikar í Hóladómkirkju hefjast sunnudaginn 19. júní og verða tónleikar haldnir í kirkjunni alla sunnudaga út ágúst. Tónleikarnir eru á sunnudögum og  hefjast kl. 14:00. Aðgangur er ókeypis.   Alexandra Chernyshova sópran og Katie Buckley hörpuleikari koma fram á fyrstu tónleikum sumarsins. Þær flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá sem spannar meðal annars íslenskar söngperlur, óperuaríur, rússnesk lög, Broadway standarda og lög Andrew Lloyd Webber.

Katie Buckley er bandarísk og hóf nám í hörpuleik 8 ára gömul og lauk gráðunum Bachelor of Music, Performer´s Certificate og Master of Music frá Eastman School of Music í Rochester, New York. Hún hefur komið fram sem einleikari með mörgum hljómsveitum, þ.á.m. The Eastman Chamber Orchestra og Rochester Philharmonic Orchestra. Árið 2004 tók Katie við stöðu hörpuleikara við Brevard Music Festival í Brevard, North Carolina og 2005 var hún ráðin hörpuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Katie var meðlimur í The World Philharmonic Orchestra í París 2006.

Alexandra Chernyshova er fædd í Kiev í Úkraínu árið 1979. Hún lauk píanónámi í tónlistaskóla árið 1993 en þaðan fór hún í söngnám í tónlistarháskólanum Glier í Kíev, því námi lauk árið 1998. Í lok október 2003 fluttist Alexandra til Íslands og hefur meðal annars stofanð, sett upp og sungið með Óperu Skagafjarðar.Sunnudaginn 26. júní eru tónleikarnir á vegum Barokkhátíðar  á Hólum sem haldin verður 23. – 26. júní.

Í júlí er það Örn Magnússon sem heldur orgeltónleika þann 3. júlí. 10.  júlí  eru það Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfsson sem leika saman á fiðlu og gítar. Helgina þar á eftir, þann 17. júlí, er röðin komin að Guðnýju Guðmundsdóttur og Gunnari Kvaran sem leika samleik á fiðlu og selló. Björg Þórhallsdóttir sópran og Elísabet Waage hörpuleikari flytja tónleika 24. júlí. Tónleikarnir 31. júlí verð auglýstir síðar.Í ágúst er boðið uppá orgeltónleika Sveins Arnar Sæmundssonar 7. ágúst. Á Hólahátíð 12.-14. ágúst er sérstök dagskrá með tónlist.  Þann 21. ágúst eru minningartónleikar um Katrínu Jónsdóttur í umsjá  Gerðar Bolladóttur söngkonu. Tónleikum sumarsins lýkur síðan með tónleikum Rikínifélagsins – félags um forna tónlist þann 28. ágúst.

Fleiri fréttir