Sumri fagnað í Húnaveri í kvöld
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps stendur fyrir sumarfagnaði í Húnaveri í kvöld. Boðið verður upp á söng, kveðskap og dans. Gestakór verður Karlakórinn Söngbræður af Vesturlandi.
Hagyrðingar úr röðum kórmanna sýna hvað í þeim býr undir styrkri stjórn Gísla H. Geirssonar. Síðan mun Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leika fyrir dansi til klukkan 02:00.
Skemmtunin hefst klukkan 20:30 og miðaverð er 4.000 krónur. Sé einungis mætt á ballið er miðaverð 2.000 krónur.