Sundlaugar loka vegna námskeiða starfsmanna

Góðir sundlaugarverðir þurfa að vera liðtækir í skyndihjálp og sækja sér þekkingu á námskeiðum en það ætla skagfirskir sundlaugarverðir einmitt að gera í næstu viku. Vegna þess verða sundlaugarnar á Sauðárkróki og Hofsósi lokaðar á eftirtöldum dögum og tímum.

Sundlaug Sauðárkróks verður lokuð þriðjudaginn 18. júní frá kl 8-12, opnar þann dag kl. 13.00 og fimmtudaginn 20. júní frá kl. 8-12, opnar þann dag kl 13.00.

Sundlaug Hofsóss verður lokuð miðvikudaginn 19. júní frá kl. 8-12, opnar þann dag kl. 13.00 og föstudaginn 21. júní frá kl. 8-12, opnar þann dag kl. 13.00.

Sundlaugin í Varmahlíð er auðvitað opin samkvæmt áður útgefnum opnunartíma.

Fleiri fréttir