Svefnlausi brúðguminn á Sæluvikunni

Stjórn Leikfélags Sauðárkróks hefur ákveðið að sýna gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann í Sæluviku 2011. Leikritið er eftir Arnold og Bach í þýðingu Sverris Haraldssonar og er samkvæmt umsögn á heimasíðu Bandalags íslenskra leikfélaga (www.leiklist.is) "dæmigerður farsi þar sem allir eru að rekast á alla á röngum tíma og röngum stað en allt fer vel að lokum".

Leikfélag Sauðárkróks hefur áður sýnt þrjú gamanleikrit eftir Arnold og Bach, Húrra krakka árið 1985 og Spanskfluguna árið 1986 og Karlinn í kassanum árið 1994.

/skagafjordur.net/ls

Fleiri fréttir