Sveitarfélagið Skagafjörður ekki með í Útsvari í vetur
Sveitarfélagið Skagafjörður tekur ekki þátt í Útsvari, Spurningakeppni sveitarfélaga, í Ríkissjónvarpinu í vetur. Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar kemur fram að líkt og síðustu ár keppa 24 sveitarfélög í Útsvari, þau átta lið sem komust í fjórðungsúrslit síðasta vetur eru sjálfskrafa með en hin sextán eru dregin út eftir stærð sveitarfélaganna. Sveitarfélagið Skagafjörður var ekki dregið út að þessu sinni.
„Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ávallt sent vaska og valinkunna liðsmenn til keppninnar sem borið hafa hróður héraðsins vítt og breytt með glæsibrag. […] Því miður var Sveitarfélagið Skagafjörður ekki dregið út að þessu sinni en Skagfirðingar fylgjast þó án efa spenntir með keppninni í vetur og koma tvíefldir til baka að ári liðnu,“ segir á vef sveitarfélagsins.