Sveitarstjórnarfundur Húnaþings vestra
Sveitarstjórnarfundur Húnaþings vestra verður haldin í fundarsal Ráðhússins á Hvammstanga, fimmtudaginn 8. desember nk. kl. 15.
Verður þetta 192. fundur samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins.
Á dagskrá fundarins verður síðari umræða um fjárhagsáætlun Húnaþings vestra fyrir sveitarsjóð og undirfyrirtæki árið 2012. Einnig verður til umræðu sameining Húnaþings vestra og Bæjarhrepps og farið yfir fundargerðir frá byggðarráði, félagsmálaráði, skipulags- og umhverfisráði, landbúnaðarráði og skipulags- og umhverfisráði.